Tálbeituaðgerð Jóhannesar Gísla komin á borð lögreglu

Ég lenti einu sinni á fylleríi með sænskri rannsóknarlögreglukonu sem rannsakaði barnaníð. Hún sagði að rannsóknir bendu til að allt að 10% karlmanna væru með barnagirnd á einhverju stigi, en af þeim væri mjög lítill minnihluti sem væru "virkir", þaes væru aktíft að brjóta á eða reyna að brjóta á börnum.

Hún sagði líka að af þeim sem hefðu brotið á börnum og væru svo handteknir, skiptust þeir nokkuð snyrtilega í þrjá jafn stóra hópa - Þeir sem væru með alvarlega og ómeðhöndlaða geðsjúkdóma, þeir sem virtust vera heilbrigðir að öðru leyti, og þeir sem væru gersamlega siðblindir.

Fyrsti hópurinn réttlæti brotin alltaf fyrir sér með einhverri vitleysu.

Annar hópurinn brotnaði yfirleitt alltaf niður um leið og hann var yfirheyrður, játaði allt, voru þjakaðir af samviskubiti, og virtist yfirleitt vera ákveðinn léttir að hafa verið gripnir.

Þriðji hópurinn reyndi svo eins og hann gat að ljúga sig út úr refsingu, en þegar þeim varð ljóst að þeir gætu ekki sloppið sýndu þeir enga iðrun eða gerðu neina tilraun til að réttlæta brotið - Þeim var einfaldlega alveg sama, en þeir voru yfirleitt reiðir yfir því að vera handteknir, og snérust yfirleitt gegn lögreglufólkinu með fúkyrðum og brjálæðisköstum.

Hún var á því að fyrsti og annar hópurinn væru menn sem væri algerlega hægt að koma í veg fyrir að brytu af sér með betra aðgengi og eftirfylgni að geðlækningum, og ef sálfræðimeðferð væri í boði fyrir þá sem eru með barnagirnd en vilja ekki brjóta af sér. Þriðji hópurinn myndi svo líkleg alltaf brjóta af sér.

Það er svo ótrúlega mikið tabú að þjást af barnagirnd, þó maður brjóti ekki af sér - Að vissu leyti skiljanlega, þetta er með ógeðslegustu brotum sem til eru - En ef það væri meðferð í boði fyrir þannig menn þá væri fullt af börnum sem hefðu sloppið við misnotkun.

Gallinn er bara að til þess að þetta breytist þarf einhvern pólitískann vilja til að bjóða upp á meðferð, og það eru ekki margir stjórnmálamenn sem vilja hætta sér út í að berjast fyrir að "hjálpa barnaperrum".

/r/Iceland Thread Parent Link - visir.is