OFURÞRÁÐUR: Kórónu veiran/COVID-19

Takk fyrir að útskýra hvernig efnahagslægð er neikvæð fyrir efnahaginn. Og frábær punktur með að neikvæð áhrif leiði til neikvæðrar niðurstöðu. Ég hafði hreinlega ekki áttað mig á þessu.

En þú sagðir að það verði "ekki hægt að fjármagna alla heilbrigðisþjónustu landsins" og þess vegna muni fleiri deyja. Ég ætla því að endurtaka bara það sem ég sagði, ég sé ekki alveg hvernig efnahagslægð er að fara að verða svo djúp að við höfum hreinlega ekki efni á þeim útgjöldum sem við forgangsröðum mjög framarlega; peningur til að koma í veg fyrir að fólk deyi í hrönnum.

En þú sérð þetta greinilega öðruvísi og það er bara í fína lagi. Ég hef enga þörf fyrir að þú skiptir um skoðun, vildi bara koma minni random hugsun að. Þú mátt alveg sleppa fleiri barnaskólafyrirlestrum mín vegna, en þúveist ef þér finnst það gaman þá ætla ég alls ekki að stoppa þig.

/r/Iceland Thread Parent